Samkenndarnálgun, leið samkenndar og vakandi athygli til sáttar í eigin lífi
Ástvaldur býður upp á viðtalsmeðferð og ráðgjöf fyrir einstaklinga auk námskeiða og fyrirlestra í samvinnu við Heilan Heim.
Ert þú að upplifa vanlíðan og erfiðleika í þínu lífi? Átt þú erfitt með að setja sjálfum þér og öðrum mörk? Er spenna og og erfiðleikar í þínum samböndum og samskiptum? Er ótti og kvíði einkennandi fyrir þitt líf? Samkenndarnálgun (Comassionate Inquiery) er leið til sjálfsskoðunar, samkenndar og sáttar í eigin lífi. Samkenndarnálgun er aðferð sem leitast við að skoða rætur þeirra undirliggjandi og ómeðvituðu viðhorfa sem stjórna þínu lífi. Komast að rótum þeirra og skilja hvernig þau urðu til og af hverju í því augnamiði að sleppa takinu á þeim. |